19.10.2008 | 11:53
"Vinir"
Sagan segir að tveir vinir hafi gengið í eyðimörk.
'A leiðinni fóru þeir að rífast, og annar vinurinn gaf hinum létt á kjammann.
Honum sárnaði, en án þess að segja nokkuð skrifaði hann i sandinn,
"I DAG GAF BESTI VINUR MINN M'ER EINN 'A ANN:"
Þeir gengu áfram þangað til þeir komu á vatnslind og þar fóru þeir útí.
Vinurinn sem hafði orðið fyrir hinum áður var nærri drukknaður, en var bjargað af vini sínum.
Þegar hann hafði jafnað sig, risti hann í stein;
"'I DAG BJARGAÐI BESTI VINUR MINN M'ER FR'A DRUKKNUN."
Vinurinn sem hafði veitt honum tiltal og bjargað honum spurði;
"Þegar ég sló þig skrifaðir þú það í sandinn, og núna skrifar þú í steininn,
af hverju?"
Hann svaraði; "Þegar einhver gerir þér eitthvað illt áttu að skrifa það í sandinn,
þar sem vindur fyrirgefningar getur eytt því.
En þegar einhver gerir þér eitthvað gott þá áttu að grafa það í stein þar sem enginn
getur eytt því.
"LÆRÐU AÐ SKRIFA S'ARINDINN ÞiN 'I SANDINN OG GRAFA HAMINGJUNA ÞiNA 'I STEIN!"
Það er sagt að það taki eina mínútu að hitta sérstaka manneskju, einn tíma að kunna
meta hana, einn dag að elska hana.
En heila ævi að gleyma henni.
Meginflokkur: Trúmál og siðferði | Aukaflokkar: Bloggar, Lífstíll, Ljóð | Facebook
Athugasemdir
Falleg færsla.Guð blessi þig
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 19.10.2008 kl. 12:48
Sæl og blessuð.
Lærdómsrík færsla. Fyrirgefa það sem rangt er gert.
Megi algóur Guð vera með þér og blessa verk handa þinna.
Shalom/Rósa
Rósa Aðalsteinsdóttir, 19.10.2008 kl. 21:09
Gunnlaugur Halldór Halldórsson, 19.10.2008 kl. 22:10
Njóttu dagsins og lífsins.
Hafdís Lilja Pétursdóttir, 21.10.2008 kl. 05:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.