24.6.2008 | 20:41
Þökkum honum.
'A meðan engin mætir neyð, á meðan slétt er ævileið,
vér göngum þrátt með létta lund og leitum ei á Jesú fund.
En þegar kemur hregg og hríð og hrelling þjakar, neyð og stríð,
í dauðans angist daprir þá vér Drottin Jesú köllum á.
Hann harmakvein vort heyrir vel og hastar á hið dimma él
og sveipar skýjum sólu frá, öll sorg og kvíði dvínar þá.
En gjafarinn oss gleymist þrátt, þótt gæsku reynum hans og mátt.
Af gjöfum Drottins gleðjumst vér, en gleymum oss að þakka ber.
Sjá, ævin hefur enga bið, þó enn er tími að snúa við,
að flytja þakkir þeim sem gaf, ei það má gleymast héðan af.
Því jafnvel skynlaus skepnan sér, hve skaparanum þakka ber,
um himingeiminn, lög og láð hún lofar Drottins miklu náð.
'O, stöndum eigi eftir þá, en aftur snúum þökk að tjá,
og látum hljóma lífs með hjörð hans lof og dýrð með þakkargjörði.
I Jesú nafni.Amen,amen.
Flokkur: Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 20:46 | Facebook
Athugasemdir
Ég þakka fyrir þessi orð Guð blessi þig
Gunnlaugur Halldór Halldórsson, 24.6.2008 kl. 22:20
Sæl Arabina.
Kærar þakkir fyrir mig
Guðs blessun/Rósa
Rósa Aðalsteinsdóttir, 24.6.2008 kl. 23:00
blessi þig ,
R . S (IP-tala skráð) 25.6.2008 kl. 11:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.