"Bænin."

image0013

                     "Bænin"

'Eg bið að helgun mín til þín Jesús, mætti skína af dýrð þinni og nærveru.

Að þú Drottinn minn, lætur mig bera góðan ávöxt, á grein þína.

Eins marga og þú villt, þeim mun betri.

'Eg þrái að rísa á fætur árla dags er allt og allir sofa.

Lesa þitt lifandi orð inn í mig, biðja þín, elska og lofa þig.

Mætti öll verk mín og áform fá framgegnt í blessun og friði þínum,

með þinni vernd.

Mætti ég vera sú verkamaður sem þú hefur mikla þóknun á,

því uppskeran er mikil en verkamenn fáir.

Að ég mætti taka mína stöðu í köllun minni fyrir allar þær sálir

er þú hefur sett í hjarta mitt.

Blessa þú heimilið með hamingju og frið, og góða heilsu,

svo að dýrð þín sé í öllum og í öllu.

Gef mér að vera sú dóttir er þú verður ástfanginn af.

Sú kona sem þú dáir vegna innri fegurð er þú fyllir mig með.

Sú móðir sem þú myndir kalla mamma, þótt ég hafi ekki fætt þig.

Að ég sé sú sem þú myndir aldrei sleppa eða fara frá.

Hjálpa mér að hvílast á réttum tíma svo ég týnist ekki.

Hjálpa mér að elska aga svo ég geti gert allt þetta.

Abba Jesú. Þessa bæn bið ég heitt og sárt af öllum mínum mætti,

hjarta, huga og sál, og að allir sem lesa þessa bæn fái einnig þá blessun sem ég bið um.

'Eg bið þess í Jesú Krists nafni.

Amen. Amen þér til dýrðar, amen.

Hallelúja.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þú ert sannarlega elskandi Drottins. Ég veit Hann er stoltur af þér. Ávextir þínir bera þess merkis. Hann blessar þig ríkulega. Takk fyrir fallega bæn, elsku systir.

Einar Ingvi Magnússon (IP-tala skráð) 23.11.2008 kl. 13:12

2 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæl og blessuð

Takk innilega fyrir fallegan texta.

"Drottinn blessi þig og varðveiti þig!

 Drottinn láti sína ásjónu lýsa yfir þig og sé þér náðugur!

 Drottinn upplyfti sínu augliti yfir þig og gefi þér frið!" 4. Mós. 6. 24.-26.

Vertu Guði falin

Kær kveðja/Rósa 

Rósa Aðalsteinsdóttir, 23.11.2008 kl. 21:32

3 Smámynd: Gunnlaugur Halldór Halldórsson

Takk fyrir fallegan texta systir.  Drottinn blessi þig

Gunnlaugur Halldór Halldórsson, 24.11.2008 kl. 04:25

4 Smámynd: Aðalbjörn Leifsson

Be blessed not stressed.

Aðalbjörn Leifsson, 24.11.2008 kl. 16:41

5 identicon

Drottinn blessi þig kæra vinkona

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 26.11.2008 kl. 11:06

6 Smámynd: Linda

Guð blessi þig fyrir þína vinnu á akrinum.

bk.

Linda.

Linda, 30.11.2008 kl. 00:48

7 identicon

blessi þig

R . S (IP-tala skráð) 30.11.2008 kl. 23:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband