"Grát þú eigi.

Guðs son mælti:,, Grát þú eigi",

gæskuríkur, er hann sá

ekkju, sem hans varð á vegi,

vafin sorgum.

Þegar hryggðin hjartað sker,

huggun orð þau veita mér.

Ef ég stríð við örbirgð heyi

eða skortur hrellir mig,

Guðs son mælir:,,Grát þú eigi,

Guði víst er annt um þig,

hann, sem fæðir fugla smá,

fyrir þér mun einnig sjá".

Ef ég sjúkleik þjáður þreyi,

þungt ég styn dag og nótt,

Guðs son mælir:,,Grát þú eigi,

græða vil ég sár þín brátt.

Gegnum neyð þér ætlað er

inn að ganga í dýrð hjá mér".

Ef mér þrátt á ævidegi

óvild sýnir heimurinn,

Guðs son mælir:,,Grát þú eigi,

gæt þess, ég er vinur þinn,

heims ég líka hatur bar,

hugrór þó glaður var".

Ef á mínum ævivegi

ástvinum ég sviptur er,

Guðs son mælir:,,Grát þú eigi,

geymdir eru þeir hjá mér.

Aftur gefa þér skal þá,

þar sem hel ei granda má".

Ef á hinstu ævidegi

ógnir dauðans hrella mig,

Guðs son mælir:,,Grát þú eigi,

glötun frá ég leysti þig.

Guðs barn, lát þig gleðja það,

Guði hjá ég bjó þér stað".

H.Hálfd


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Amen.Er svo snortin af þessu að ég er orðlaus

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 30.3.2008 kl. 21:18

2 Smámynd: Gunnlaugur Halldór Halldórsson

amen og og Guð blessi þig Arabina. og Takk fyrir meg

Gunnlaugur Halldór Halldórsson, 30.3.2008 kl. 21:57

3 Smámynd: Aida.

Enda var ég að hugsa til þín Birna mín.

Þetta er Drottinn að tala til þín.

Aida., 30.3.2008 kl. 23:20

4 Smámynd: Aida.

Takk Gulli minn og Drottinn blessi þig ávalt verkamaður hans

i Jesú nafni. Amen.

Aida., 30.3.2008 kl. 23:42

5 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Kæra Arabina. Takk fyrir mig. Guð blessi þig. Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 31.3.2008 kl. 00:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband