"Hin sanna viska"

Dock

Barn mitt, ef þú veitir orðum mínum viðtöku og geymir boðorð mín hjá þér,

svo að þú ljáir spekinni athygli þina, hneigir hjarta þitt að hyggindum,

já ef þú kallar á skynsemina og hrópar á hyggindin, ef þú leitar af

þeim sem að silfri og grefst eftir þeim eins og fólgnum fjársjóðum,

þá munt þú skilja, hvað ótti Drottins er, að öðlast þekking á Guði.

Því að Drottinn veitir speki, af munni hans kemur þekking og hyggindi.

Hann geymir hinum ráðvöndu gæfuna, er skjöldur þeirra, sem breyta grandvarlega.

Með því að hann vakir yfir stigum réttarins og varðveitir veg sinna Guðhræddu.

Þá munt þú skilja, hvað réttlæti er og réttur og ráðvendi,- í stuttu máli,

sérhverja braut hins góða.

Því að speki mun koma i hjarta þitt, og þekking verða sálu þinni yndisleg.

Aðgætni mun vernda þig og hyggindin varðveita þig, til þess að frelsa þig frá

vegi hins illa, frá þeim mönnum, sem fara með fals, sem yfirgefa stigu einlægninnar

og ganga á vegum myrkursins sem hafa gleði af því að gjöra illt, fagna yfir illsku

hrekkjum, sem gjöra vegu sinna hlykkjótta og komnir eru á glapstigu í breytni sinni,

til þess að þú gangir á vegi góðra manna og haldir þig á stigum réttlátra.

Því að hinir hreinskilnu munu byggja landið, og hinir grandvöru verða eftir í því.

En hinir óguðlegu munu upprættir verða úr landinu, og hinum svikulu verða útrýmt þaðan.

Því munnur Drottins hefur talað það.

'I Jesú nafni.Amen,amen,amen.

Hallelú


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnlaugur Halldór Halldórsson

Hallelúja Amen. Guð blessi þig

Kveðja Gulli Dóri

Gunnlaugur Halldór Halldórsson, 2.1.2009 kl. 16:36

2 Smámynd: Kristín Gunnarsdóttir

Guð blessi þig kæra vina

Kristín Gunnarsdóttir, 3.1.2009 kl. 09:58

3 Smámynd: Aida.

Guð blessi ykkur bæði og þakkir fyrir innlitið.

Aida., 3.1.2009 kl. 10:48

4 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæl og blessuð kæra Aida.

Takk fyrir yndislegt Guðs orð.

Vertu Guði falin

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 3.1.2009 kl. 15:58

5 Smámynd: Óskar Arnórsson

Undarlegt að hafa gaman af að lesa eitthvað sem mað eiginlega botnar ekkert í!...skilaboðasýstemið virkar ekki Aida. Ég var með marga frá Kumla og meira að segja úr "bunkernum"..það er nú ljóti staðurinn..

Óskar Arnórsson, 4.1.2009 kl. 02:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband