3.4.2009 | 10:21
Faðir, faðir.
Vor guð, í Jesú nafni nú ,hér nálgast þig , þín börn í von og trú .
Ó, heyr, við biðjum bljúg um náð og blessun þína og hjálparráð,
og leiðsögn lífs á vegi.
Faðir,faðir, vík ei frá oss, ver þú hjá oss og veit oss að finna
gleði og frið í gæslu þinni.
Lát oss helgast þér, í hjörtu okkar máttkur ver með þínum ástar anda,
lát sálir okkar samtengjast í sannleika og stöðug standa.
Faðir, faðir, veg þinn fetað veit oss geta ,í trú og sannleika.
Í Jesú nafni. Amen.
Amen,amen.
Meginflokkur: Trúmál og siðferði | Aukaflokkar: Lífstíll, Ljóð, Löggæsla | Facebook
Athugasemdir
Fallegt blogg frá fallegri sál, takk
Sverrir Halldórsson, 3.4.2009 kl. 14:38
Þakka þér fyrir bloggvináttuboðið ég þigg það með þökkum og vona að það verði okkur báðum ánægjulegt.
Undirskrift mín er lítið hjarta.
egvania, 3.4.2009 kl. 21:01
Takk fyrir innlitið og hlýar kveðjur.
Það er mér heiður að fá að vera með egvania, takk fyrir bloggvináttuna.
Ég er þess fullviss að það verði okkur báðar til blessunar.
Aida., 3.4.2009 kl. 23:54
Amen. Guð/Jesús blessi þig mín besta trú systir
kær kveðja Gulli Dóei
Gunnlaugur Halldór Halldórsson, 4.4.2009 kl. 00:13
Takk fyrir bænirnar bróðir, er mér hjartahlýar.
Drottinn blessi þig og varðveiti elsku vinur.
Aida., 4.4.2009 kl. 10:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.